fimmtudagur, apríl 06, 2006

Skutlaðist í strætó niður á Hlemm og TR með myndina, hljóp svo í skítakuldanum og rokinu yfir á löggustöð, en fékk að vita þar að nú ég yrði að fara upp í Skógarhlíð til sýslumanns til að sækja um passa, það er hætt að taka við umsóknum á löggustöð.
Nú, nú, það vissi ég ekki en svona er þetta víst núna, svo það bíður bara betri tíma og bíls. Svo erum við skötuhjúin búin að plana leiðangur til að krækja í skanna og prentara, þá mun verða mikið um dýrðir hér á bæ. Svo er ég á fullu í ferðalagadraumum mínum, svo sem hér má sjá: Ferðalög
Myspace

Engin ummæli: