laugardagur, maí 06, 2006

Falleg sýning


Í dag fór ég að sjá sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur sem Matti, skólabróðir minn úr menntó og Heidi, konan hans hafa aðstoðað við að setja upp þar. Hafi þau þökk fyrir að bjóða mér. Þetta er sýning á ungverskum bútasaumi, alveg frábærlega falleg sýning og mæli ég með því að sem flestir fari að sjá hana, sérstaklega þeir sem hafa áhuga á saumaskap og fallegu handverki.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bestu þakkir fyrir komuna og falleg orð. Sjáumst! Matti.