mánudagur, maí 08, 2006

Í gær...og í dag...

Í gær fórum við Óskar og Lárus í sund í nýju, fínu sundlaugina í Kópavogi í hitanum og góða veðrinu, það var þrælfínt. Í dag var ekki alveg eins hlýtt, en samt mjög gott veður og ég var mjög sniðug og fór í Nauthólsvíkina eftir hádegi og var þar í frekar köldu en stórgóðu sólabaði fram eftir degi. Þetta hef ég hugsað mér að endurtaka sem oftast í sumar, þar sem baðstrandalíf er það sem ég elska hvað mest í heiminum. Nauthólsvík er bara nokkuð góð baðströnd!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ah, mikið væri ég til í að fara með þér í Víkina, ef þú ert að þvælast þar ein, hef mig ekki í að fara þangað svona ein, en dauðlangar samt.
Síminn minn er 5675767

kv. Lalla

Saumakona - eða þannig sagði...

Sjáum til, hef þig í huga! ;o)