Næst-síðasti viðburður á Listahátíð í Reykjavík 2006 verður í kvöld. Ég verð að segja að ég er mjög sátt við þáttöku mína í hátíðinni í ár, ég fór á tvenna tónleika og sá eina gamla og góða kvikmynd. Á eftir að fara og sjá sýningar sem opnaðar voru í tengslum við hana sem standa fram á sumar og ein fram á haust, minnir mig.

Svo tekur við listahátíðin "
Bjartir dagar" í Hafnarfirði, sem byrjar í dag og stendur til 10. júní. Kosturinn við hana er sá að á henni er allt meira og minna ókeypis, eða þá að verði er mjög stillt í hóf. Svo það á ekki að vera neitt mál að kíkja á hana, þó svo ég hafi splæst á mig miðum á þessa þrjá viðburði á hinni hátíðinni. Var að skoða dagskrána sem kom inn um póstlúguna um daginn og virtist þar kenna margra kræsilegra grasa.
2 ummæli:
Sæl Greta Björg, gaman að skoða pistlana þína. ÞEgar ég las um bíómyndina sem þú fórst á eftir Fellini þá rak ég í rogastans því þessa mynd er ég búin að reyna að sjá í fjöldamörg ár og mundi bara eftir leikurunum í henni en ekki hvað hún hét, hún hafði mjög sterk áhrif á mig þegar ég sá hana fyrir fjölmörgum árum..bestu kveðjur, Gurrý
Takk fyrir kveðjuna, Gurrý.
Já, ég skil vel að La Strada skuli hafa haft mikil á áhrif á þig, myndin sú er sannkallað meistaraverk.
Kveðja, Greta Björg
Skrifa ummæli