
Einnig er búið að setja upp á veggjum kirkjunnar, í tenglsum við tónleikana, sýningu á íkonamyndum frá Balkanskaga, sem kórinn hefur fengið til landsins, en hún kemur hingað frá London. Þessa sýningu ætla ég líka að skoða betur en ég gerði í gær, þegar ég var aðallega í því eftir messu að heilsa fólki og spjalla við Nebojsa vin minn, sem syngur í kórnum. Hann er serbi sem ég kynntist fyrir sex árum síðan, nýkomnum til landsins, og hefur hann verið mikill vinur minn síðan.
Sýningin er sölusýning, þar sem sýnd eru 88 verk sem kosta á bilinu frá 30.000.- og upp í 420.000.- krónur! En sum verkanna eru þó í einkaeign.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli