mánudagur, júlí 10, 2006

Sunnudagur til sælu

Ég átti skemmtilegan dag í gær. Við keyrðum austur á Stokkseyri í góða veðrinu og borðuðum humar á veitingahúsinu Við fjöruborðið, nammi-namm, við urðum sko ekki fyrir vonbrigðum með hann og stemningin þar er líka frábær. Svo kíktum við inn í galleríið hjá glerlistakonnunni Ellu Rósinkrans, sem líka býr til fallega skartgripi. Síðast en ekki síst skoðuðum við Draugasetrið, sem reyndist skemmtileg og skondin upplifun. Svo héldum við heim á leið um þrengslin, en þegar við komum að gatnamótunum þar sáum við að bílalestin var endalaus í bæinn, svo við ventum okkar kvæði í kross og ókum í austurátt og komum heim í gegnum Grímsnesið og Nesjavelli og niður hjá Hafravatni. Þá var bílalestin á Vesturlandsveginum gengin niður, en ég las í blöðunum í morgun að hún hefði verið umtalsverð í þá áttina líka, en að lestin í austurátt hefði á tímabili teygt sig alla leið á Selfoss. Það var víst alveg óvenjulega mikil umferð á þessu sunnudagssíðdegi, þó hún sé venjulega mikil, þegar fólk er að koma heim úr sumarbústöðunum eftir helgina.

P.s. Nú fer ég bráðum að fá tölvuleikina sem ég pantaði mér, ég hlakka sko til að fá þá, en ekki sérstaklega að borga af þeim tollinn, ætli hann verði ekki jafn hár eða jafnvel hærri en verðið á vörunni samanalagt. Sú var að minnsta kosti raunin með Tai Chi-gallana sem Óskar fékk um daginn. En ég held að það margborgi sig þrátt fyrir það að panta þetta á netinu frekar en að kaupa það út úr búð hér heima, fyrst maður er að kaupa sér þetta á annað borð.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Blessuð.
Ég var á Stokkseyri um daginn og fór akkúrat á þennan rúnt og hafði mikið gaman af.
Einnig sáum við "Brennið þið vitar" - það er kannski ekki lengur sýnt.
Ég var í þessari umræddu bílalest; var einn og hálfan tíma úr Grafningi í bæinn!
Hå det så godt, så godt!
Guðný Anna