
En svo ætla ég að fara að byrja að sortera myndir og filmur sem ég á og er búin að ætla að gera í dálítinn tíma og láta setja það besta á diska, þá get ég farið að setja kannski einhverjar myndir frá sjálfri mér líka í þessa pósta, núna er þetta eingöngu stöff sem ég gúgla á Google Images.

Það er mjög sniðugt að geta sett myndir beint inn úr arkívum
mínum hér í Blogger, en Picasa-Hello er betra ef maður vill ráða stærðinni sjálfur. Svo ræður maður sjálfur þar hvernig kant maður fær, lengi vel setti ég fyrir mig kantinn sem Blogger setur utanum og fannst hann eitthvað ósnyrtilegur, en hef sætt mig við

Ég hugsa að ef ég væri ung í dag þá myndi ég hella mér í einhvers konar útlitshönnun í prentgeiranum eða eitthvað þannig, ég er búin að uppgötva að ég hef þvílíkt gaman af að spekúlera í svona og get legið tímunum saman yfir smáatriðum sem flestum öðrum finnst algjör aukaatriði, þangað til ég er ánægð, jahá!
4 ummæli:
Eru komin með tölvuveikina eins og sumir aðrir - einu sinni byrjað, þú getur ekki hætt
Það átti nú að standa kveðja frá Þorbjörgu, kann ekki alveg á þessi comments þín, ég þarf alltaf að sanna að ég sé manneskja en ekki vél, sem er að skrifa þetta.
Kveðja, Þorbjörg
Mikið rétt að gaman er að vera að vinna með myndir. Hef gert það sjálf í 15 ár, best fynnst mér Fierworks frá Macromedia (ókeypis auglýsing).
Lilja
Takk fyrir þessa ábendingu, kíki á það!
Skrifa ummæli